Lífið

Vill Pacino sem Frank Sinatra

Pacino mun hugsanlega leika Frank Sinatra í næstu mynd Martins Scorsese.
Pacino mun hugsanlega leika Frank Sinatra í næstu mynd Martins Scorsese.

Leikstjórinn Martin Scorsese vonast til að þeir Al Pacino og Robert De Niro leiki í næstu mynd sinni, sem fjallar um ævi söngvarans Franks Sinatra.

Pacino myndi leika Sinatra og De Niro vin hans Dean Martin. Leonardo DiCaprio hafði áður verið orðaður við hlutverk Sinatra en samkvæmt Scorsese er Pacino hans fyrsti valkostur.

Töluverður aldursmunur er á milli Pacino og DiCaprio og verður fróðlegt að sjá hvor þeirra verður á endanum fyrir valinu. Scorsese segir að handrit myndarinnar sé tilbúið og nú sé næsta skref að finna hinn fullkomna Sinatra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×