Lífið

Hætti ekki fyrr en Dan kemur til Dalvíkur

dan til dalvíkur Björn Snorrason hefur mikinn áhuga á að fá Dan Bornstein til Dalvíkur að flytja fyrirlestur um Android-símastýrikerfið. Bornstein ber ábyrgð á Dalvik Java-sýndarvélinni sem er innbyggð í kerfið.
dan til dalvíkur Björn Snorrason hefur mikinn áhuga á að fá Dan Bornstein til Dalvíkur að flytja fyrirlestur um Android-símastýrikerfið. Bornstein ber ábyrgð á Dalvik Java-sýndarvélinni sem er innbyggð í kerfið.

„Við ætlum að fá hann til að koma – við erum að spá í næstu fiskidaga. Þá eru flestir hérna. Ég trúi ekki öðru en að margir hafi áhuga á að hlusta á hann,“ segir Björn Snorrason, framkvæmdastjóri Dalpay og varamaður í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá hefur nafni Dalvíkur verið dreift í 60 milljónir farsíma um allan heim. Þó ekki með snjöllu markaðsbragði, heldur sem nafn á svokallaðri Java-sýndarvél sem er innbyggð í Android-farsímastýrikerfinu frá Google. Hugbúnaðarverkfræðingurinn Dan Bornstein skrifaði Dalvik Java-sýndarvélina, en hann hefur mikinn áhuga á bænum og hefur komið þangað einu sinni. Björn hefur áhuga á að fá hann aftur til Dalvíkur til að halda fyrirlestur.

„Hann hefur verið með fyrirlestra um Android og við ætluðum að fá hann til að vera með strípaða útgáfu á mannamáli,“ segir Björn, sem á einnig sæti í atvinnumálanefnd sveitarfélagsins.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Bornstein mikinn áhuga á að heimsækja Dalvík á ný. Hann er einnig liðtækur plötusnúður þannig að Björn veltir fyrir sér hvort hann slái upp balli í leiðinni. Fyrsta skrefið væri þó að fá hann til bæjarins á ný.

„Ég hætti ekki fyrr en hann kemur,“ segir Björn að lokum. - afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.