Sport

Leikmönnum Jets ekki refsað fyrir meinta áreitni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sjónvarpskonan sem lenti í uppákomu í búningsklefa Jets.
Sjónvarpskonan sem lenti í uppákomu í búningsklefa Jets.

Forráðamenn NFL-deildarinnar ætla ekki að aðhafast frekar í máli leikmanna New York Jets sem voru sakaðir um áreitni í garð mexíkóskrar sjónvarpskonu á dögunum.

NFL viðurkennir að hegðun leikmannanna hafi verið óviðeigandi og ófagmannleg. Engu að síður séu engar sannanir að nokkur hafi snert konuna.

Engu að síður ætlar deildin að sjá til þess að leikmenn og forráðamenn liðanna þurfi að mæta á námskeið þar sem þeir læra rétta framkomu í garð kvenkyns fjölmiðlamanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×