Körfubolti

Umfjöllun: Grindavík lagði Keflavík í spennuleik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Þorleifur Ólafsson.
Þorleifur Ólafsson.

Grindvíkingar jöfnuðu Keflvíkinga að stigum með því að leggja þá 76-72 á heimavelli sínum í Iceland Express-deildinni í kvöld. Spennan undir lokin var mjög mikil.

Heimamenn léku án Páls Axels Vilbergssonar sem var veikur og því ljóst að aðrar skyttur liðsins þurftu að stíga upp. Baráttan var meiri en gæðin í fyrri hálfleiknum en Grindvíkingar leiddu með níu stiga mun í hálfleik 41-32.

Þeir höfðu fjögurra stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann en þá spíttu Keflvíkingar í lófana um stundarsakir og komust yfir 22-24. Grindvíkingar, með Darrell Flake í fararbroddi vöknuðu þá aftur og reyndust sterkari fram að hálfleiknum.

Keflvíkingar mættu grimmir til leiks í seinni hálfleik og þegar þeir minnkuðu muninn í 45-43 brá Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindvíkinga, á það ráð að taka leikhlé. Varnarleikur Keflvíkinga var farinn að smella betur og meiri hraði var kominn í leikinn.

Allt var opið fyrir síðasta fjórðunginn, staðan 61-60. Gríðarleg spenna og mikið jafnræði var á lokasprettinum. Heimamenn skoruðu þriggja stiga körfu þegar tæpar tvær mínútur voru eftir og komust yfir 73-69 og bættu við einu stigi af vítalínunni skömmu síðar.

Gunnar Einarsson minnkaði muninn með þriggja stiga körfu á lokamínútunni 74-72. Ómar Örn Sævarsson átti hinsvegar lokaorðið fyrir Grindvíkinga og úrslitin 76-72.

Grindavík - Keflavík 76-72 (41-32)

Stig Grindavíkur: Darrell Flake 29, Ómar Örn Sævarsson 12, Þorleifur Ólafsson 11, Guðlaugur Eyjólfsson 9, Brenton Birmingham 8, Ólafur Ólafsson 4, Arnar Freyr Jónsson 3.

Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 20, Draelon Burns 14, Urule Igbavboa 11, Hörður Axel Vilhjálmsson 8, Jón Nordal Hafsteinsson 7, Sigurður Þorsteinsson 6, Sverrir Sverrisson 4, Þröstur Leó Jóhannsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×