Lífið

Fann loks ástina

Ryan Seacrest hefur fundið ástina og bað kærustu sinnar í rómantískri ferð til Parísar. nordicphotos/getty
Ryan Seacrest hefur fundið ástina og bað kærustu sinnar í rómantískri ferð til Parísar. nordicphotos/getty

Ryan Seacrest, kynnir American Idol, bað kærustu sinnar í rómantískri ferð til Parísar fyrir stuttu. Seacrest og leikkonan Julianne Hough hafa verið saman síðan í sumar.

„Ryan vill giftast Julianne og hann vildi biðja hennar á mjög rómantískan máta," var haft eftir heimildarmanni. Parið var í fríi í París ásamt fjölskyldu Seacrest þegar hann bar upp bónorðið.

„Hann skipulagði helgarferðina sjálfur og bauð einnig systur sinni og foreldrum svo þau gætu deilt þessari stund með honum og Julianne. Þau eru mjög ástfangin og Julianne hefur mjög góð áhrif á Ryan, sem er nú farinn að huga að öðrum hlutum en vinnunni," sagði heimildarmaðurinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×