Lífið

Feis!

ríkur frank Frankie Muniz þarf hvorki að hafa áhyggjur af peningum né skotum á Twitter.
ríkur frank Frankie Muniz þarf hvorki að hafa áhyggjur af peningum né skotum á Twitter.

Fyrrverandi leikarinn Frankie Muniz, sem lék eftirminnilega aðalhlutverkið í þáttunum Malcom in the Middle, fékk skot á sig á Twitter á dögunum. Þar sagði notandi að hann væri hræðilegur leikari, en Muniz var fljótur að svara fyrir sig:

„Já, en að vera búinn að setjast í helgan stein með 40 milljónir dollara 19 ára gamall hefur ekki verið hræðilegt. Gangi þér vel að flytja út úr foreldrahúsunum áður en þú verður 35 ára."

Það skal tekið fram að 40 milljónir dollara eru um fjórir og hálfur milljarður íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.