Bíó og sjónvarp

Patrick Dempsey í Transformers 3

Patrick Dempsey hyggst leika ögn dekkri persónu en hann hefur áður leikið í Trans­formers 3.
Patrick Dempsey hyggst leika ögn dekkri persónu en hann hefur áður leikið í Trans­formers 3.

Patrick Dempsey, þekktastur fyrir leik sinn í Grey's Anatomy og rómantískum kvikmyndum, hyggst skipta aðeins um gír ef marka má orð hans í brasilískum blöðum.

Empire greinir frá því að Dempsey hafi upplýst á hvítum ströndum Rio að hann myndi leika stórt hlutverk í þriðju Transformers-myndinni. Og að persóna hans yrði ögn „dekkri" en þær sem hann hefur hingað til leikið. Svo virðist vera að þessi umbreyting Dempsey eigi við um alla Transformers-myndina því þótt Shia Labeouf og Megan Fox séu enn til staðar þá hafa þau Frances McDormand og John Malkovich einnig bæst í hópinn.

Michael Bay er um þessar mundir að prófa nýjar tæknibrellur og búast má við mikilli veislu fyrir augað þegar þriðja myndin ratar í kvikmyndahús heimsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×