Vill láta stöðva myndir af sér á síðunni Flick My Life Freyr Bjarnason skrifar 11. desember 2010 00:01 Ásgeir Kolbeinsson er orðinn þreyttur á myndum af sér á síðunni FlickMyLife.com. Síðan er ein vinsælasta og umtalaðasta afþreyingarsíða landsins. fréttablaðið/anton „
Þetta er orðið óþægilega mikið áreiti," viðurkennir sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson, sem hefur verið áberandi á síðunni Flick My Life síðan hún fór í loftið á síðasta ári. Myndir af honum við hin ýmsu tækifæri, gamlar sem nýjar, hafa verið sendar þangað inn og þær síðan birtar undir nafninu Kolb in the Wild eða Kolb in the Child. Enn lengra var seilst í gær þegar mynd birtist af honum á svölunum heima hjá sér en sjálfur hafði Ásgeir ekki séð hana þegar Fréttablaðið spurði hann út í málið. „Auðvitað hefur maður húmor fyrir því þegar maður sér fyrst nafnið Kolb in the Wild. Því einu og sér er svo sem alveg hægt að brosa yfir," segir Ásgeir. „En síðan er þetta búið að vinda mikið upp á sig. Þetta er löngu hætt að snúast um að fólk sendir inn myndir sem einhver hefur fundið hér og þar. Þetta hefur snúist upp í að fólk er farið að reyna að ná nýjum myndum," segir hann og finnst „grínið" hafa gengið full langt. „Maður er hvergi öruggur. Einhverjar myndir eru af mér á veitingastöðum með fjölskyldunni. Það er frekar pirrandi að geta ekki haft sitt einkalíf í friði." Líður þér þá kannski eins og Hollywood-stjörnu? „Eins fáránlega og það hljómar þá er þetta eflaust nákvæmlega sama upplifun. Maður er alltaf var um sig." Ásgeir er að vonum þreyttur á þessari athygli en lítur þó á björtu hliðarnar. „Það er ekki eins og þetta sé á neinum neikvæðum nótum. Fólk hefur bara gaman af þessu og það er eðlilegt þegar eitthvað fær svona athygli að fleiri vilja vera þátttakendur í því." Honum finnst brandarinn samt vera búinn og ætlar að hafa samband við eigendur Flick My Life og biðja þá um að hætta með Kolb-konseptið. Spurður hvort hann íhugi að leita réttar síns enn frekar segir Ásgeir: „Ég er ekki þekktur fyrir að búa til einhver leiðindi en ég vona að þeir hafi skilning á því að þetta sé orðið gott. Ef þeir sjá ekki að sér að stoppa þetta þegar maður biður þá í vinsemd um það þá hef ég í rauninni engu að tapa." Heimasíðuna sem um ræðir má nálgast hér.
Mest lesið „Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“ Lífið Héldu skírnarveislu á Hótel Borg Lífið Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ Áskorun Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka Lífið Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka Lífið „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Lífið Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tónlist Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Lífið Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar Lífið Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“ Lífið Fleiri fréttir Ragga Hólm og Elma eignuðust dreng Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka Héldu skírnarveislu á Hótel Borg „Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“ Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Krakkatían: Skólarapp, fótbolti og landafræði Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn Fréttatía vikunnar: Alþingi, tónlist og íþróttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig Sjá meira