Innlent

Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald

Þorvarður Davíð Ólafsson, sem réðist á föður sinn, Ólaf Þórðarson, á heimili sínu um miðjan nóvember síðastliðinn, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. janúar.

Gæsluvarðhald sem Þorvarður var úrskurðaður í rann út í dag og ákvað lögreglan að krefjast lengra gæsluvarðhalds.

Ólafur var í lok nóvember færður af gjörgæsludeild yfir á heila- og taugadeild og var þá á hægum batavegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×