Lífið

Sarah Jessica Parker: Engar aðgerðir

Sarah Jessica Parker segist ekki vilja leggjast undir hnífinn til að halda í æskuljómann.
nordicphotos/getty
Sarah Jessica Parker segist ekki vilja leggjast undir hnífinn til að halda í æskuljómann. nordicphotos/getty

Eitt vinsælasta umfjöllunarefni tískutímarita í dag virðist vera ellin og hvernig frægar konur taka því að eldast. Leikkonan Sarah Jessica Parker sagði í viðtali við tímaritið Elle að lítið væri hægt að gera til að breyta gangi lífsins.

„Ég veit ekki hvað ég ætti til bragðs að taka. Já, ég er að eldast og þetta minnir mig stundum á það þegar maður horfir á blómvönd fölna. En hvað get ég gert til að koma í veg fyrir það? Ekki vil ég líta út eins og brjálæðingur," sagði leikkonan, sem vísar þar til kvenna sem leita í of miklu mæli í lýtaaðgerðir.

Parker er þriggja barna móðir og fæddust tvíburadætur hennar með aðstoð staðgöngumóður. Leikkonan segir að það hafi verið sérstök lífsreynsla.

„Tíminn stóð kyrr. Ég elskaði þær um leið og ég sá þær en allt við þær var mér ókunnugt. Þær litu ekkert út eins og sonur minn, James Wilkie, og það kom mér á óvart," sagði Parker.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.