Bíó og sjónvarp

Ógeðið Freddy Krueger slær aftur í gegn

Leikarinn Jackie Earle Haley er á öðrum slóðum í hryllingsmyndinni en þegar hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna í vor.
Leikarinn Jackie Earle Haley er á öðrum slóðum í hryllingsmyndinni en þegar hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna í vor.

Maðurinn með hnífafingurna, Freddy Krueger, er aftur mættur á hvíta tjaldið til að hrella kvikmyndahúsagesti. Og svo virðist sem bandarískir kvikmyndaáhugamenn hafi saknað herra Kruegers því myndin slátraði allri samkeppni um síðustu helgi í Bandaríkjunum. Myndin halaði inn rúmlega þrisvar sinnum meira en How to Train Your Dragon sem situr í öðru sæti listans. Gamanmyndin Date Night með Steve Carell og Tinu Fey er í öðru sæti.

Myndin er endurgerð á gömlu hryllingsmyndinni hans Wes Craven frá árinu 1984 þar sem Freddy birtist fyrst. Þá var Robert Englund í hlutverki Freddy en leikarinn lék fjöldamorðingjann í alls sjö myndum. Englund er hins vegar víðsfjarri í nýju útgáfunni því það er Jackie Earle Haley sem leikur hann núna.

Þótt ótrúlegt megi virðast þá var Jackie þessi tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir bestan leik í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Little Children þar sem hann fór á kostum á móti Kate Winslet og Jennifer Connelly. Hann er á eilítið annarri og ögn blóðugri slóð í sinni nýjustu mynd. Hann er þó ekki algjör nýliði í grímubransanum í bíómyndum þar sem hann fór með hlutverk Rorschach í Watchmen hér um árið.

Hér má sjá sýnishornið úr nýju Nightmare on Elm Street.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×