Innlent

Óvissustigi aflétt á Austurlandi

Óvissustigi vegna flóðahættu á Austurlandi hefur verið aflétt. Ekki er vitað til þess að þar hafi orðið flóð eða krapastíflur en mikið óveður var um tíma, segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Undir Eyjafjöllum urðu flóð í Svaðbælisá og í Seljalandsá. Flóðið í Seljalandsá rauf þjóðveg 1 um tíma en Vegagerðinni tókst að opna hjáleið eftir skamma bið. Á þessum slóðum var úrhellisrigning og mikið hvassviðri um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×