Handbolti

Karen: Köstuðum þessu frá okkur

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir.

„Við vorum að elta þær nánast allan leikinn og vorum undir mest allan leikinn. Þetta jafnaðist undir lokin og síðustu tíu mínúturnar vorum við komnar með þetta svolítið í okkar hendur en við köstuðum þessu alveg frá okkur,” sagði Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram, eftir tap gegn Val í fyrstu viðureign liðanna í úrslitaeinvígi N1-deild kvenna í handbolta.

Karen Knútsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Fram í leiknum en hún var ekki ánægð með sóknarleikinn hjá sínu liði.

„Sóknarleikurinn okkar var ekki góður í dag. Við náðum ekki að skora nein auðveld mörk og þær spiluðu góða vörn. Berglind var líka erfið í markinu og varði vel fyrir þær. Íris Björk var líka virkilega góð í markinu hjá okkur og hefði munurinn getað verið miklu meiri. Við þurfum að nýta okkur það betur þegar að hún á svona góðan leik,” bætti Karen við.

Liðin mætast að nýju á heimavelli Fram n.k. þriðjudag og Karen segir að nú sé kominn tími til að sýna hvað í þeim býr.

„Nú þurfum við bara að pæla aðeins í okkur sjálfum og bæta nokkra hluti, það mun gerast á þriðjudaginn. Næsti leikur leggst vel í mig og þetta verður eflaust virkilega spennandi líkt og leikurinn í dag. Það er auðvitað alltaf  svekkjandi að tapa en ég er bara mjög spennt. Það er kominn tími til að sýna hvað í okkur býr,” sagði Karen að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×