Íslenski boltinn

ÍBV komst í undanúrslit í VISA-bikar kvenna

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr leik Stjörnunnar og Grindavíkur í kvöld.
Úr leik Stjörnunnar og Grindavíkur í kvöld. Fréttablaðið/Stefán
Átta liða úrslit VISA-bikars kvenna fóru fram í kvöld. Valur, Stjarnan, Þór/KA og ÍBV tryggðu sér sæti í undanúrslitum keppninnar.

ÍBV spilar í fyrstu deildinni og kom því á óvart með því að vinna Hauka, 2-0 í Eyjum. Sigurinn var þó síst of stór.

Valsstúlkur lögðu Fylki í Árbænum með sömu markatölu, 2-0 og þá vann Stjarnan stórsigur á Grindavík, 4-0.

Þór/KA burstaði svo FH 5-1.

Dregið er í undanúrslitin á þriðjudaginn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×