Lífið

Frægri Benz-bifreið stolið

Benz-bifreið kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á miðvikudaginn.fréttablaðið/gva
Benz-bifreið kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á miðvikudaginn.fréttablaðið/gva
Bíl kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á Njálsgötu á miðvikudaginn var. Bíllinn er grænn Benz af árgerðinni 1979 og því um antíkgrip að ræða.

„Ég var nýkominn heim eftir tökur og lagði bílnum fyrir utan húsið. Tveimur klukkustundum síðar var hann horfinn. Vitni sagðist hafa séð tvo menn í mjög annarlegu ástandi brjótast inn í bílinn og keyra niður Njálsgötuna og beint í flasið á tökuliði kvikmyndarinnar Gauragangs. Þeir keyrðu beint aftan á einn trukkinn sem tökuliðið var með og héldu svo glæfraakstrinum áfram. Sem betur fer slasaðist enginn," segir Heimir.

Hann eignaðist bílinn fyrr í sumar og hefur síðan þá eytt miklum tíma í að gera bílinn upp og því er þetta fyrst og fremst mikið tilfinningalegt tjón fyrir Heimi. „Við notuðum bílinn við tökur á myndinni Djúpinu í sumar og ég keypti hann í kjölfarið af Þorsteini Bachmann leikara. Þetta er rosalegur kaggi og í góðu ástandi þannig að ég vil gjarnan fá hann aftur. Hann er það sérstakur að það ætti ekki að vera hægt að rúnta um bæinn á honum án þess að eftir honum verði tekið," segir Heimir, sem biður fólk um að hafa augun opin og gera lögreglu viðvart sjái það bílinn einhvers staðar á ferð. „Ég veit að hann er klesstur að framan núna eftir áreksturinn við tökulið Gauragangs, annars vona ég að hann sé nokkurn veginn í heilu lagi," segir hann að lokum.- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.