Innlent

Ruddist inn á heimili

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karlmaður ruddist inn á heimili í Hrunamannahreppi í óþökk húsráðanda í gærkvöld. Lögreglu- og sjúkralið var sent á vettvang.

Sá sem réðist inn í húsið hringdi í lögreglu eftir atvikið og sagðist hafa farið inn í húsið og sagðist bíða eftir lögreglu. Hann var fluttur á lögrelgustöð þar sem hann var yfirheyrður. Húsráðandinn gaf einnig skýrslu en honum var mjög brugðið en óslasaður.

Lögreglan segir að rannsókn málsins sé svo til lokið. Ástæða húsbrotsins mun hafa verið einhver pirringur árásarmannsins í garð hins en þeir þekkjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×