Lífið

Lindsay skuldar 80 milljónir í kreditkort

Bókhaldið er ekki sterka hlið Lindsay.
Bókhaldið er ekki sterka hlið Lindsay.

Leikkonan Lindsay Lohan er sífellt nær því að sigla í strand. Nú berast fregnir af því að kreditkortafyrirtækin sem hún skiptir við séu búin að fá nóg af skuldasöfnun hennar, hafi lokað á kortin og undirbúi málssókn. Reikningarnir nemi samtals 80 milljónum króna.

Ferill leikkonunnar er í algjöru uppnámi. Síðasta kvikmynd sem hún lék í fékk ekki inni í kvikmyndahúsum og næturlífsbarónar sækjast ekki lengur eftir viðveru hennar líkt og fyrir nokkrum árum. Þá fékk hún margar milljónir króna borgaðar fyrir að mæta á klúbba en þær upphæðir hafa snarminnkað.

Skuldasöfnun er ekki nýtt þema hjá Lindsay. Hún lenti upp á kant við nokkur hótel í Hollywood fyrir nokkrum árum eftir að hafa leigt flottustu svíturnar og ekki borgað. Þá hótaði leigutaki hennar að henda henni út fyrir skemmstu en þá borgaði hún inn á skuldina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.