Innlent

Ákvörðun um færslu Markarfljóts veldur uppnámi

Ósar Markarfljóts. Mynd/ Rósa.
Ósar Markarfljóts. Mynd/ Rósa.
Ákvörðun samgönguráðherra í gær að færa ósa Markarfljóts um tvo kílómetra olli uppnámi í stjórnkerfinu í morgun. Umhverfisráðuneytið spurðist fyrir um hvort framkvæmdin þyrfti að fara í umhverfismat og sveitarstjóri Rangárþings eystra boðaði til skyndifundar en hann bendir á að leita þurfi samþykkis fjögurra landeigenda.

Siglingastofnun tilkynnti síðdegis í gær um aðgerðir í þremur liðum til að bjarga Landeyjahöfn og lét þess jafnframt getið að samgönguráðherra hefði fallist á þær. Sú róttækasta, að færa ósa Markarfljóts austur á bóginn um tvo kílómetra, hefur hins vegar valdið uppnámi í stjórnkerfinu í morgun.

Þannig hringdi umhverfisráðuneytið í Skipulagsstofnun til að spyrjast fyrir um það hvort svona aðgerð þyrfti ekki að fara í umhverfismat. Siglingastofnun telur svo ekki vera og hefur þegar rætt við Suðurverk, verktaka Landeyjahafnar, um að vinna verkið sem viðbót við hafnargerðina, að sögn Þórhildar Elínardóttur, upplýsingafulltrúa Siglingastofnunar.

Skipulagsstofnun hefur hins vegar þegar svarað umhverfisráðuneyti á þann veg að framkvæmdin sé tilkynningaskyld og Skipulagsstofnun myndi síðan úrskurða innan fjögurra vikna hvort hún sé matsskyld, að sögn Rutar Kristinsdóttur, sviðsstjóra umhverfissviðs hjá Skipulagsstofnun.

Á skrifstofu Rangárþings eystra hrukku menn einnig í kút við fréttirnar um færslu Markarfljóts. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri brást við með því að boða nokkra lykilaðila til fundar klukkan eitt í dag til að fjalla um málið og leita svara við spurningum eins og hvort framkvæmdin þurfi að fara í grenndarkynningu, skipulagsferli og umhverfismat. Þá segir Ísólfur Gylfi að nauðsynlegt sé að ræða við landeigendur en hann kveðst vita til þess að það hafi ekki verið gert, að minnsta kosti ekki formlega. Hann segir þetta snerta fjóra bæi, þrjá austan fljóts og einn vestan fljóts.

Dofri Eysteinsson hjá Suðurverki segir allt til reiðu að hefjast handa. Hann eigi grjót á lager í væntanlegan flóðvarnagarð, það muni taka um það bil einn mánuð að færa fljótið og kosta 20 til 30 milljónir króna og hann bíði nú aðeins eftir merki frá Siglingastofnun um að mega byrja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×