Lífið

Niðurskurður í jóladagatali Sjónvarpsins

vöðum ekki í peningum Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri Sjónvarpsins segir niðurskurðinn hafa verið óumflýjanlegan en telur að enginn eigi að verða fyrir vonbrigðum með jóladagatalið í ár.
vöðum ekki í peningum Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri Sjónvarpsins segir niðurskurðinn hafa verið óumflýjanlegan en telur að enginn eigi að verða fyrir vonbrigðum með jóladagatalið í ár.

„Í ár er jóladagatalið norskt,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Sjónvarpsins.

Jóladagatalið hefur verið fastur dagskrárliður í Sjónvarpinu allt frá árinu 1986 og eflaust muna margir eftir þekktum persónum úr jóladagatalinu sem stytti börnum stundir á meðan beðið var eftir jólunum. Aðeins einu sinni áður hefur efnið verið erlent, en árið 1993 sýndi Sjónvarpið jóladagatal um Múmínálfana. Hún segir ástæðuna fyrir erlenda efninu afar einfalda.

„Þetta er afskaplega dýrt efni í framleiðslu og eins og allir vita vöðum við ekki í peningum hérna.“

Sjónvarpið hefur haft þá hefð að gefa út dagatal samhliða sjónvarpsefninu en þar verður einnig niðurskurður. „Við erum að tapa peningum á því að gefa það út,“ segir Sigrún og bætir við að áhuginn á jóladagatalinu hafi farið minnkandi með árunum.

Sjónvarpið hefur oft á tíðum endursýnt gamalt jóladagatal og segir Sigrún að það hafi komið til umræðu í ár. „Já, það kom til greina. En af tveimur mögulegum kostum fannst mér þessi kostur vera betri. Ég vildi frekar bjóða upp á nýtt og flott efni,“ segir Sigrún. Hún segist ekki hafa orðið vör við gagnrýni.

„Það væri voðalega gaman að geta gert allt, en þannig er nú bara ekki það líf sem við búum við í dag,“ segir Sigrún en bætir við að jóladagatalið í ár verði mjög skemmtilegt og öll fjölskyldan eigi eflaust eftir að hafa gaman af.

Jóladagatalið heitir á frummálinu „Jul i Svingen“ en í íslenskri þýðingu kallast það „Jól í Snædal“.- ka






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.