Lífið

Robin Wright sem Erika Berger

Robin hefur verið ráðin í hlutverk Eriku Berger í Karlar sem hata konur.
Robin hefur verið ráðin í hlutverk Eriku Berger í Karlar sem hata konur.

Robin Wright hefur verið ráðin í hlutverk Eriku Berger í bandarísku útgáfunni af Karlar sem hata konur. Persónan Berger er ritstjóri tímaritsins Millenium og ástkona blaðamannsins Mikaels Blomkvist, sem Daniel Craig mun leika. Enn á eftir að ráða í hlutverk Lisbeth Salander.

Wright hefur á ferilsskránni myndir á borð við Forrest Gump, Unbreakable og State of Play. Stutt er síðan hún skildi formlega við leikarann Sean Penn, eiginmann sinn til margra ára.

Leikstjóri Karlar sem hata konur verður David Fincher, maðurinn á bak við Fight Club, Seven og The Curious Case of Benjamin Button.


Tengdar fréttir

Tekin upp í Svíþjóð

Eins og flestum er kunnugt vinnur leikstjórinn David Fincher nú hörðum höndum að því að undirbúa tökur á myndinni, The girl with the dragon tattoo, sem er byggð á metsölubókinni Karlar sem hata konur eftir sænska höfundinn Stieg Larsson.

Bond verður Blomkvist

Línur eru smám saman að skýrast með bandarísku endurgerðina af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Brad Pitt virðist ekki ætla að leika rannsóknarblaðamanninn Mikael Blomkvist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.