Lífið

Lindsay sökuð um að stela Rolex-úri

Lindsay kann að koma sér í vandræði.
Lindsay kann að koma sér í vandræði.
Lindsay Lohan er algjör vandræðasegull. Í gær réðist faðir hennar með lögreglumönnum inn á heimili hennar til að ná í litlu systur hennar sem býr hjá henni þessa dagana. Hann yfirgaf svæðið einn en systurnar og móðir þeirra segja hann genginn af göflunum.

Í dag segja fjölmiðlar síðan frá því að lögreglan hafi einnig heimsótt Lindsay á heimili hennar á miðvikudag. Þá til að yfirheyra hana vegna kæru um að hún hafi stolið fjögurra milljóna króna Rolex-úri frá kunningja sem mætti í partý til hennar fyrr á árinu.

Samkvæmt fréttum er lögreglan með ljósmyndir undir höndum sem sanna það að hún viti um úrið, væntanlega hefur hún skartað því eitthvert kvöldið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Lohan er sökuð um þjófnað. Scotland Yard yfirheyrði hana í fyrra eftir að Dior-skartgripir, sem eru tugmilljóna króna virði, hurfu eftir að hún sat fyrir með þá í myndatöku fyrir tímaritið Elle. Það mál er ennþá óleyst.

Ári áður kærði fyrirsæta hana fyrir að stela rándýrum minkapels. Pelsinum var skilað og málið fellt niður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.