Lífið

Larry King vissi af framhjáhaldi konunnar

Larry King og eiginkona hans hafa ekki verið hvort öðru trú ef marka má sögusagnir.
Larry King og eiginkona hans hafa ekki verið hvort öðru trú ef marka má sögusagnir.
Spjallþáttakóngurinn Larry King og eiginkona hans til þrettán ára hafa ákveðið að skilja, en þetta er sjöunda hjónaband Kings sem fer í vaskinn.

Samkvæmt fjölmiðlum hið vestra á King að hafa átt í áralöngu ástarsambandi við yngri systur eiginkonu sinnar. Shawn Southwick, eiginkona Kings, á jafnframt að hafa verið í þingum við hafnaboltaþjálfara sona sinna, Hector Panate, en sá heldur því fram að King hafi vitað af sambandinu en hafi ekkert aðhafst því hann hafi sjálfur verið ástfanginn af annarri konu.

„Ég held að Larry sé ástfanginn af systur Shawn. Ég kynntist Shawn árið 2007 og varð fljótt ástfanginn af henni. Larry vissi af sambandinu enda borgaði Shawn leiguna mína, keypti handa mér föt, bíl og hún vildi meira að segja eignast barn með mér,“ sagði Hector.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.