Lífið

Bíósýning fyrir vöðvatröll

„Allir kjötuðustu menn á Íslandi munu mæta á þessa sýningu. Það er ekki eitt vöðvafjall sem verður heima hjá sér á föstudaginn," sagði Egill „Þykki" Einarsson í viðtali við Fréttablaðið í vikunni sem leið.

Það voru orð að sönnu eins og meðfylgjandi myndskeið sem sýnt var í Íslandi í dag í kvöld sýnir þar sem konur og menn gerðu tilraun til að lyfta 100 kílóum fyrir það eitt að fá fría miða á hasarmyndina The Expendables, sem skartar jöxlum á borð við Sylvester Stallone, Bruce Willis, Jet Li, Mickey Rourke og Jason Statham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×