Stjörnumenn unnu sinn fyrsta sigur í Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2010 20:37 Jovan Zdravevski lék vel í Keflavík. Mynd/Valli
Stjarnan vann sinn annan leik í röð í Iceland Express deild karla þegar liðið vann 9 stiga sigur á Keflavík í Keflavík í kvöld. Þetta var jafnframt annar tapleikur heimamanna í röð. Stjörnumenn voru yfir í hálfleik þökk sé góðum endaspretti í bæði lok fyrsta og annars leikhluta. Stjarnan skoraði sex síðustu stig fyrsta leikhlutans og var 23-20 yfir í lok hans. Keflvíkingar voru búnir að ná forustunni í öðrum leikluta en Keflavíkurliðið skoraði ekki stig síðustu fjórar mínútur hálfleiksins og á meðan skoraði Stjörnuliðið níu stig í röð og breytti stöðunni úr 32-29 í 32-38. Stjörnumenn bættu við forskotið í þriðja leikhluta og voru voru tíu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 59-49. Keflvíkingar unnu sig enn á ný inn í leikinn í fjórða leikhlutanum og voru búnir að minnka muninn í fjögur stig, 63-67, en gáfu enn á ný eftir í lokin og gestirnir úr Garðabænum nýttu sér það og tryggðu sér 9 stiga sigur, 78-69. Jovan Zdravevski var með 21 stig og 11 fráköst í liði Stjörnunnar og Marvin Valdimarsson skoraði 17 stig. Justin Shouse var aðeins með 9 stig en það kom ekki að sök. Gunnar Einarsson skoraði 18 stg fyrir Keflavík og Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 16 stig og 8 fráköst. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði síðan 17 stig. Keflavík-Stjarnan 69-78 (20-23, 12-15, 17-21, 20-19)Keflavík: Gunnar Einarsson 18/4 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16/8 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 7/9 fráköst, Elentínus Margeirsson 3/5 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 3, Hafliði Már Brynjarsson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2/8 fráköst/3 varin skot.Stjarnan: Jovan Zdravevski 21/11 fráköst, Marvin Valdimarsson 17/6 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 9, Justin Shouse 9/4 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Aron Ingvason 7, Fannar Freyr Helgason 7/4 fráköst/3 varin skot, Guðjón Lárusson 6/6 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 2/5 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Sjá meira