Handbolti

Umfjöllun: Framstúlkur í úrslit

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel

Framstúlkur fóru auðveldlega með Stjörnuna í seinni leik liðanna í undanúrslitum N1-deild kvenna í handbolta. Fram sigraði sannfærandi 18-25.

Leikurinn fór rólega af stað og mikið stress einkenndi bæði lið. Fram-stúlkur skoruðu til að mynda ekki mark fyrr en eftir um sjö mínútna leik sem að verður að teljast lélegt. Það var mikil barátta í báðum liðum og fyrri hálfleikur mjög jafn á báða boga.

Stjörnuliðið byrjaði leikinn betur en eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn þá unnu Framstúlkur sig betur og betur inn í leikinn. Þær tóku svo forystuna og leiddu í hálfleik með einu marki, 10-11.

Heimastúlkur mættu grimmar í síðari hálfleikinn, skoruðu fyrstu tvö mörkin og komust yfir á nýjan leik. Gestirnir voru ekki lengi að svara og sneru blaðinu við í kjölfarið. Fram-liðið tók svo öll völd í sínar hendur og skildu heimastúlkur eftir.

Fram var komið með sex marka forystu þegar korter var liðið af seinni hálfleik og útlit fyrir að þær væru á leið í úrslitarimmuna. Vörnin fór að virka vel hjá þeim líka sem að heimastúlkur áttu  í miklum erfiðleikum með að brjóta. Að auki stóð Íris Björk Símonardóttir vaktina vel í markinu hjá Fram, með mikilvægar vörslur.

Pavla Nevarilova fór á kostum fyrir gestina og raðaði inn mörkum í síðari hálfleik. Hildur Þorgeirsdóttir og Karen Knútsdóttir fóru einnig mikinn í liði Fram. Heimastúlkur voru ekki nógu sterkar til þess að vinna sig aftur inn í leikinn og þar með ljóst að Framstúlkur eru á leið í úrslitasenuna.

Markahæst í liði Stjörnunar Jóna Margrét Ragnarsdóttir með fimm mörk en í liði gestanna var það Pavla Nevarilova sem skoraði sjö mörk.



Stjarnan-Fram 18-25 (10-11)

Mörk Stjörnunnar(skot): Jóna Margrét Ragnarsdóttir 5 (7), Jóna Sigríður Halldórsdóttir 4 (4), Þorgerður Anna Atladóttir 4 (16), Harpa Sif Eyjólfsdóttir 3 (9), Elísabet Gunnarsdóttir 2/1 (2/1).

Varin skot: Florentina Stanciu 11/1 skot varin.

Hraðaupphlaup: 3 (Jóna 2, Elísabet)
Fiskuð víti: 1 (Anna Blöndal)
Utan vallar: 6 mín.

Mörk Fram(skot): Pavla Nevarilova 7 (8), Karen Knútsdóttir 5/1 (8/1), Hildur Þorgeirsdóttir 4 (5), Stella Sigurðardóttir 4 (7), Marthe Sördal 2 (4), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (3), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1 (3/1), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1 (4).

Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 16 skot varin. Helga Vala Jónsdóttir 1 skot varið.
Hraðaupphlaup: 5 ( Karen 3, Guðrún 2)
Fiskuð víti: 2 (Stella, Pavla)
Utan vallar: 2 mín.

Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, ágætir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×