Innlent

Útför Ólafs Gauks á mánudag

Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Ísland
Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Ísland
Útför Ólafs Gauks Þórhallssonar, tónlistarmanns, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 20. júní 2011 klukkan 13:00.

Ólafur Gaukur fæddist 11.ágúst 1930 en lést á hvítasunnudag, 12. júní, 2011.

Dóttir Ólafs, Anna Mjöll, óskaði eftir því að tilkynning um útförina yrði birt.

Foreldrar Ólafs Gauks voru Bergþóra Einarsdóttir frá Garðhúsum í Grindavík og Þórhallur Þorgilsson magister í rómönskum málum.

Ólafur Gaukur var einn helsti brautryðjandi dægurtónlistar á Íslandi sem gítarleikari, lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, útsetjari, textahöfundur, plötuútgefandi og kennari. Hann útskrifaðist úr kvikmyndatónlistarháskóla Dick Grove í Los Angeles árið 1984.

Aðeins fimmtán ára gamall stofnaði Ólafur Gaukur sitt fyrsta tríó og á menntaskólaárum sínum hóf hann að leika með vinsælustu danshljómsveitum landsins, meðal annars KK sextett. Einnig stýrði hann eigin hljómsveitum og mun Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur vera þeirra þekktust. Ólafur Gaukur stofnaði Gítarskóla Ólafs Gauks árið 1975 og rak hann til æviloka.

Fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar hlaut Ólafur Gaukur ýmsar viðurkenningar. Hann var útnefndur til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd, fyrir myndina Benjamín Dúfu á Berlin Film Festival í Þýskalandi árið 2006. Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna hlaut hann árið 2006. Árið 2008 var hann sæmdur hinni Íslensku fálkaorðu, sama ár var hann kjörinn heiðursfélagi í Félagi tónskálda og textahöfunda og árið 2009 sæmdu gítarleikarar hann Gullnöglinni.

Ólafur Gaukur lætur eftir sig uppkomin börn. Eftirlifandi eiginkona Ólafs Gauks er Svanhildur Jakobsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×