Innlent

Milljónum skotið undan skatti

Mynd úr safni
Að minnsta kosti sex manns eru grunaðir um að hafa skotið tugum milljóna undan skatti með erlendum greiðslukortum.

Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Þar sagði að tuttugu sambærileg mál séu í rannsókn og í sumum þeirra nema undanskotin hundruðum milljóna. Þrjátíu manns hafa sætt rannsókn vegna notkunar erlendra greiðslukorta á tæpum tveimur árum. Rannsókn er lokið í tólf og verða að minnsta kosti sex send til saksóknara en hin málin til ríkisskattstjóra sem tekur ákvörðun um álagningu skatts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×