Innlent

Fjör á Dönskum dögum í Stykkishólmi

Stykkishólmur
Stykkishólmur Mynd úr safni
Karlmaður um tvítugt var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í Stykkishólmi í gærkvöldi en þar fara fram Danskir dagar. Þá var karlmaður tekinn ölvaður undir stýri í nótt í bænum.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni hefur hátíðin farið vel fram og lítil ölvun er á svæðinu. Dansleikur var í gærkvöldi og lauk honum klukkan þrjú og voru flestir komnir í bólið stuttu eftir það.

Hann býst við að í dag eigi gestum frekar eftir að fjölga en fækka því sjálfur poppkóngurinn Páll Óskar verður með dansleik í íþróttahúsinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×