Innlent

Bílslys í miðbænum: Haldið sofandi í öndunarvél

Áreksturinn á Geirsgötunni í gær
Áreksturinn á Geirsgötunni í gær
Einn af þeim sem var í bílnum, sem ökumaður missti stjórn á Geirsgötunni í Reykjavík í gærkvöldi, er haldið sofandi í öndunarvél, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi.

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíllinn hafnaði á vegg gömlu Hafnarbúðarinnar en tveir farþegar eru minna slasaðir.

Slysið er í rannsókn hjá lögreglu en líklegt er að bifreiðinni hafi verið ekið töluvert yfir hámarkshraða, sem er 50 kílómetrar á klukkustund á þessum stað.

Geirsgötunni var lokað í um tvær klukkustundir í gær eftir slysið og er bifreiðin ónýt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×