Lífið

Þór þrumuguð í diskóstuði

Syngur fyrir ÞórBryndís Jakobsdóttir syngur nýtt lag Baggalútsmannsins Braga Valdimars fyrir teiknimyndina Hetjur Valhallar: Þór.
Syngur fyrir ÞórBryndís Jakobsdóttir syngur nýtt lag Baggalútsmannsins Braga Valdimars fyrir teiknimyndina Hetjur Valhallar: Þór.
„Við settumst aðeins yfir þetta, ég og Kiddi Hjálmur [Guðmundur Kristinn Jónsson] og enduðum í einhverju diskóstuði," segir Bragi Valdimar Skúlason, sem hefur samið lagið Elding fyrir teiknimyndina Hetjur Valhallar: Þór sem verður frumsýnd um miðjan október. Myndin er dýrasta kvikmynd Íslandssögunnar og er leikstýrt af Óskari Jónassyni. Með hlutverk Þórs í myndinni fer Atli Rafn Sigurðarson en Þórhallur Sigurðsson, Laddi, talar fyrir hamarinn.



Bragi fékk Bryndísi Jakobsdóttur til að syngja lagið en segist ekki hafa þurft að setja sig í sérstakar stellingar. „Nei, alls ekki, mér fannst hins vegar eldingin hafa eilítið gleymst af því að Þór er jú þrumuguð. Hann er svolítið upptekinn af hamrinum sínum sem er eflaust efni í nokkra sálfræðitíma.“

Hljómsveitararmur Baggalúts, sem Bragi er í forsvari fyrir, hefur síðan tekið afgerandi forystu í jólatónleikakapphlaupinu mikla þann 3. desember því uppselt er á tvenna tónleika hljómsveitarinnar í Háskólabíói. „Við unnum jólakapphlaupið í ár, við ætluðum okkur alltaf að vera á undan IKEA og það tókst,“ en hljómsveitin er jafnframt að ljúka við plötu þar sem hægt verður að finna gamlar syndir og lög sem hafa ekki áður komið út á geisladiski.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.