Innlent

Brátt byrjað að afferma Goðafoss

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Goðafoss strandaði við Frederiksstad.
Goðafoss strandaði við Frederiksstad.
Byrjað verður að afferma Goðafoss á næstu tveimur klukkutímum, samkvæmt upplýsingum frá Eimskipum. Unnið verður að því að afferma eins lengi og birtuskilyrði leyfa, segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi félagsins, í samtali við Vísi.

„Björgunarfélag hefur nú metið aðstæður og lagt fram nákvæma björgunaráætlun fyrir norsku strandgæsluna og sérfræðinga Eimskips sem unnið verður eftir," segir Ólafur. „Spáð er áframhaldandi logni á strandsvæðinu sem mun auðvelda björgunaraðgerðir en verkefnið krefst nákvæmni og þolinmæði og ekki verður flanað að neinu," segir Ólafur jafnframt í yfirlýsingu frá Eimskip.

Ólafur segir í yfirlýsingu til fjölmiðla að umhverfisáhrifin af völdum olíulekans virðist ætla að verða mun minni en upphaflega hafi verið óttast og tekist hafi að hefta útbreiðslu olíunnar, en norska strandgæslan hafi yfirumsjón með aðgerðum sem snúi að verndun náttúrunnar. Ekki séu skemmdir á farmi en um 430 gámar séu um borð í skipinu. Að sögn Ólafs var neyðaráætlun Eimskipafélags Íslands virkjuð og óhappanefnd kölluð til um leið og fregnir bárust af því að Goðafoss hefði strandað skammt fyrir utan Fredriksstad í Noregi.

„Strax var haft samband við tryggingafélög og aðra hlutaðeigandi aðila og leitað til færustu björgunarfélaga ytra á sviði sjóslysa. Þá fór hópur starfsmanna Eimskips hér á landi til Noregs, í því skyni að vera áhöfninni á Goðafossi til halds og trausts. Forstjóri félagsins, Gylfi Sigfússon, hélt einnig þegar í stað á strandstað þar sem hann stýrir starfi óhappanefndar Eimskips á svæðinu og snemma í morgun fór hann um borð í Goðafoss, ræddi við skipstjóra og áhöfn og kynnti sér aðstæður," segir Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×