Innlent

Brotist inn í tvo söluturna

Brotist var inn í tvo söluturna og vídeóleigur í Breiðholti og Grafarvogi í nótt og þaðan stolið talsverðu af sígarettum.

Ekki liggur fyrir hvort einhverju öðru var stolið, en þjófurinn, eða þjófarnir, eru ófundnir. Í báðum tilvikum voru rúður brotnar og fóru þjófarnir þar inn.

Verksummerki eru svipuð og gætu sömu þjófar hafa verið á ferð á báum stöðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×