Innlent

Sex teknir fyrir ölvunarakstur

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Sex ökumenn voru teknir úr umferð vegna ölvunaraksturs á höfuðborgarsvæðinu í nótt og einn vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.

Sex af þessum sjö manna hóp, voru teknir í miðborginni og allir voru þeir teknir á aðeins einni og hálfri klukkustund.

Lögreglan kann ekki skýringu á þessum óvenju mikla fjölda , því þetta jafnast á við slæma nótt um helgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×