Innlent

Fór út af á Öxnadalsheiðinni

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Lögreglan á Akureyri aðstoðaði í nótt ökumann, sem hafði misst bíl sinn út af þjóðveginum á Öxnadalsheiði, í slæmu færi og veðri.

Hvorki ökumann né farþega sakaði. Lögreglumenn náðu að draga bílinn upp á veginn og fylgdu þeir svo bílnum niður af heiðinni. Víða er mikill krapi á götum á Akureyri og á vegum þar í grennd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×