Innlent

Funduðu um sjávarútvegsmál í Brussel

Seinni rýnifundi Íslands og Evrópusambandsins um sjávarútvegsmál lauk í Brussel í dag en á fundinum gerðu sérfræðingar Íslands grein fyrir íslenskri löggjöf á sviði sjávarútvegs.

Kolbeinn Árnason er formaður samningahóps Íslands, en sendinefndin lagði áherslu á sérstöðu íslensk sjávarútvegs „sem er þjóðhagslega mun mikilvægari en í nokkru aðildarríki ESB. Greint var frá árangri Íslands við stjórnun fiskveiða sem er almennt betri en innan ESB. Þá var fjallað um sérstöðu Íslands hvað varðar staðbundna stofna  og þá staðreynd að efnahagslögsaga Íslands liggur ekki að efnahagslögsögu nokkurs aðildarríkis ESB," segir í tilkynningu.

Á rýnifundinum var sérstök áhersla lögð á þá fyrirvara sem fram koma í áliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis vegna aðildarumsóknar Íslands meðal annars „forræði íslenskra stjórnvalda yfir sjávarauðlindinni með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi. Í álitinu segir meirihlutinn mikilvægt að leggja áherslu á meginreglur hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna sem tryggir ákveðin grundvallarréttindi. Ennfremur að Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er þannig að réttindi Íslands til veiða úr þeim verði sem best tryggð. Sendinefndin lagði sérstaka áherslu á andstöðu Íslands við reglur ESB sem heimila brottkast á fiski.   Á fundinum var einnig lögð mikil áhersla á að haldið verði í möguleika á því að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi þannig að tryggt sé að afrakstur auðlindarinnar falli til á Íslandi, en lögð er sérstök áhersla á þetta atriði í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar. Löggjöf ESB um sjávarútveg er umfangsmikil og er samningskafli 13 utan EES-samningsins," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×