Innlent

Aðalmeðferð í máli Baldurs fram haldið á föstudag

Framhaldi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins, hefur verið frestað fram á föstudag. Skýrslutökur drógust mjög á langinn í dag, til að mynda gaf Baldur skýrslu í hálfa aðra klukkustund í stað áætlaðrar klukkustundar, og því var ákveðið að boða hluta þeirra fyrir dóm á föstudag sem bera áttu vitni í dag.

Aðalmeðferðin hefst að nýju á föstudagsmorguninn klukkan korter yfir níu og mun þá Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, bera fyrstur vitni. Aðrir sem áttu að bera vitni í dag koma á eftir honum.

Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, verður kallaður frá útlöndum til að bera vitni. Gert er ráð fyrir að allir nema Halldór ljúki að bera vitni á föstudag. Málflutningur í málinu er áætlaður í þarnæstu viku og er stefnt að því að Halldór beri vitni sama dag.


Tengdar fréttir

Aðalmeðferð yfir Baldri hafin

Aðalmeðferð er hafin í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Baldur er ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi, fyrir að hafa með ólögmætum hætti nýtt sér upplýsingar sem hann hafði, umfram aðra, þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir um 192 milljónir króna.

Samráðshópurinn vissi um fyrirhugað hámark á Icesave-innistæður

Bolli Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, segir engan vafa leika á að á fulltrúum í samráðshópi um fjármálastöðugleika og viðbúnað, hafi verið kunnugt um að breska fjármálaeftirlitið hafi tekið ákvörðun um að setja fimm milljarða punda hámark á innistæður Icesave-reikninga í Bretlandi haustið 2008.

Bolli taldi sig ekki geta selt sín bréf - hefði mælt gegn sölu Baldurs

Bolli Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, segir að sér hafi ekki verið fært að selja hlutabréf sín í íslensku viðskiptabönkunum fyrir bankahrunið haustið 2008 vegna þeirra trúnaðarupplýsinga sem hann bjó yfir sem fulltrui í samráðshópi um fjármálastöðugleika og viðbúnað. Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, sem átti sæti í þessum sama hópi, ákvað hins vegar að selja öll hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir rúmar 192 milljónir. Hlutabréfin seldi Baldur 17. og 18. september 2008. Bolla og Baldur greinir á um hvort Baldur hafi tilkynnt honum um sölu bréfanna áður en hún átti sér stað eða eftir á.

Baldri Guðlaugs leið "extra vel" þegar hann seldi bréfin

Baldur Guðlaugsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri sagði fyrir dómi í morgun að sér hefði liðið "extra vel“ þegar hann seldi bréf sín í Landsbankanum hinn 17. september 2008 og sagðist viss um að hafa ekki búið yfir innherjaupplýsingum.

Rík áhersla lögð á trúnað á fundum samráðshópsins

Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að rík áhersla hafi verið lögð á trúnað um það sem fram fór á fundum samráðshóps um fjármálastöðugleika og viðbúnað fyrir bankahrunið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×