Handbolti

Fylkir í úrslitakeppnina eftir jafntefli gegn Stjörnunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fylkisstelpur rétt sluppu inn í úrslitakeppnina.
Fylkisstelpur rétt sluppu inn í úrslitakeppnina.
Fylkir náði að tryggja sér sæti í úrslitakeppni N1-deildar kvenna er liðið náði jafntefli, 28-28, á heimavelli gegn Stjörnunni. Þetta var lokaumferðin í deildinni.

Hefði Fylki ekki tekist að næla í stig gegn Stjörnunni hefði HK náð fjórða sætinu en HK valtaði yfir ÍR í dag.

Liðin í úrslitakeppninni eru því Valur, Fram, Stjarnan og Fylkir.

Fylkir-Stjarnan 28-28 (13-10)

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 9, Sunna Jónsdóttir 5, Sigríður Hauksdóttir 3, Arna Erlingsdóttir 3, Tinna Soffía Traustadóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 2, Anna María Guðmundsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 1.

Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 9, Elísabet Gunnarsdóttir 4, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 3, Hildur Harðardóttir 3, Kristín Jóhanna Clausen 3, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Gunnur Sveinsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærnested 2.

ÍR-HK 15-38 (5-17)

Mörk ÍR: Sif Jónsdóttir 3, Silja Ísberg 3, Jóhanna Guðbjörnsdóttir 2, Ella Kowaltz 2,  Guðrún Eysteinsdóttir 2, Hekla Ámundadóttir 1, Þorbjörg Steinarsdóttir 1, Steinunn Sveinbjörnsdóttir 1.

Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 12, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 7, Elísa Ósk Viðarsdóttir 6, Elín Anna Baldursdóttir 5, Tinna Rögnvaldsdóttir 3, Elva Björg Arnarsdóttir 2, Auður Ómarsdóttir 1, Líney Rut Guðmundsdóttir 1, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1.

FH-Haukar  24-22 (17-10)

Mörk FH: Birna Íris Helgadóttir 5, Heiðdís Guðmundsdóttir 4, Berglind Björgvinsdóttir 4, Margrét Aronsdóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 2, Sigrún Gilsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 2, Sigrún Jóhannsdóttir 1.

Mörk Hauka: Þórunn Friðriksdóttir 5, Elsa Björg Arnardóttir 5, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 4, Þórdís Helgadóttir 3, Karen Sigurjónsdóttir 2, Viktoría Valdimarsdóttir 2, Erla Eiríksdóttir 1.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×