Körfubolti

Pétur Ingvarsson: Við mættum hingað til þess að sigra

Pétur Ingvarsson þjálfari Hauka mætti með lið sitt vel undirbúið til leiks og snigilhraði var á sóknarleik liðsins. Allt samkvæmt áætlun því Haukarnir töpuðu með 42 stig mun í deildarleiknum gegn Snæfelli í vetur. "Við mættum hér til þess að vinna og ég get lofað því að við munum mæta með sama hugarfari í leikinn á Ásvöllum. Við fórum illa með þá í fyrri hluta leiksins en okkur gekk illa að skora gegn svæðisvörn þeirra. Færin komu en við nýttum þau ekki en við finnum út úr því fyrir næsta leik," sagði Pétur eftir 76-67 tap Hauka í Stykkishólmi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×