Innlent

Öllu innanlandsflugi frá Reykjavík frestað

Öllu innanlandsflugi frá Reykjavík hefur verið frestað vegna óveðurs og verða skilyrði könnnuð nánar á níunda tímanum.

Það gegnur á með mjög dimmum éljum á höfuðborgarsvæðinu og snörpum vindhviðum. Spáð er 13 til 18 metrum á sekúndu á svæðinu með éljum og vægu frosti, en á heldur að fara að lægja síðdegis.

Annars er spáð allt að 23 metra vindi á sekúndu norðvestanlands og allra austast á landinu og víða éljum. Heldur á að draga úr frosti þegar líður á daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×