Innlent

Þrjú óhöpp á einni klukkustund í sama umdæmi

Þrír ökumenn sluppu ómeiddir úr þremur umferðaróhöppum á sömu klukkustundinni í umdæmi Selfosslögreglunnar í gærkvöldi, en töluvert eignatjón varð.

Einn ók á 38 tommu jeppadekk, sem lá á miðjum Eyrarbakkaveginum, annar ók á umferðarskilti á sama vegi og sá þriðji ók utan í vír-girðingu á milli akbrauta á Suðurlandsvegi, fyrir ofan Draugahlíðarbrekku, austan við Litlu Kaffistofuna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×