Innlent

Fiskibátur á reki

Björgunarskip frá Stykkishólmi var kallað til aðstoðar.
Björgunarskip frá Stykkishólmi var kallað til aðstoðar.
Aðalvél bilaði í 16 tonna fiskibáti á Breiðafirði í gærkvöldi og tók hann að reka. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og var björgunarskip Landsbjargar í Stykkishólmi kallað út auk þess sem fiskibátur fór frá Stykkishólmi  með björgunarsveitarmenn um borð. Fiskibáturinn tók bilaða bátinn í tog og er nú á leið með hann til lands. Ekkert amar að bátsverjunum tveimur, sem eru um borð í bilaða bátnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×