Innlent

Skráning hafin í Ævintýraland

Hressir krakkar í Ævintýralandi
Hressir krakkar í Ævintýralandi
Skráning í Sumarbúðirnar Ævintýraland á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði er hafin og er þetta fjórtánda árið sem þessar vinsælu sumarbúðir starfa.

Í sumarbúðunum er boðið upp á sjö námskeið sem börnin geta valið úr, m.a. í kvikmyndagerð, leiklist, dansi og grímugerð, auk mikillar afþreyingar, segir í tilkynningu.

„Starfsemin er uppbyggileg og með mikið forvarnagildi. Sundlaug er á staðnum, góð gæsla og vel valið starfsfólk. Netskráning verið efld til að anna álagi og hægt er að ganga frá skráningu og greiðslu í gegnum heimasíðu búðanna,“segir ennfremur í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×