Staðfestir dóm yfir syni manns í "stærstu glæpasamtökum heims" 24. mars 2011 16:37 Hæstirétttur.
Hæstiréttur staðfesti dóm yfir hálffertugum karlmanni sem var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta karlmann og marglemja hann í bifreið. Samkvæmt dómsorði þá hótaði hann einnig manninum, en hann sagði að faðir sinn væri hátt settur í „stærstu glæpasamtökum heims" og að lítið mál væri að láta menn á hans vegum vinna barnshafandi konu fórnarlambsins mein. Það var í febrúar 2009 sem mennirnir hittust í bifreið hins dæmda. Hann bar upp á fórnarlambið að hann ætti í tygjum við konu sína. Ástæðan voru póstsamskipti sem gengu þeirra á milli en þau unnu þá saman. Um var að ræða grínpósta að sögn fórnarlambsins en svo virðist sem afbrýðissami eiginmaðurinn hafi misskilið grínið með þeim afleiðingum að hann gekk í skrokk á honum í bílnum. Þá hótaði árásarmaðurinn manninum öllu illu, meðal annars með stöðu föður síns innan „stærstu glæpasamtaka heims". Ekki er ljóst hvaða samtök árásarmaðurinn átti við, en stærstu glæpasamtök veraldar er Yakuza-mafían í Japan. Talið er að meðlimir japönsku mafíunnar séu tæplega 90 þúsund. Þó má leiða líkur að því að um Vítisenglana sé að ræða þar sem Yakuza-mafían hefur ekki haslað sér völl hér á landi. Ennþá. Í dómsorði kemur fram að árás mannsins hafi verið harkaleg og langdregin. Þá hafi hann sýnt einbeittan brotavilja með verkinu. Því sé ekki tilefni til þess að skilorðsbinda refsinguna.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Innlent Fleiri fréttir Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Sjá meira