Innlent

Rúmlega tíu þúsund hafa mótmælt skólatillögum

Tíu þúsund og fimm hundruð manns hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun á vefnum börn.is. Þar er skorað á borgarstjórn Reykjavíkur að falla frá fyrirhuguðum breytingum á rekstri leik- og grunnskóla og frístundaheimila í borginni.

Aðstandendur vefsins segja þær ekki byggðar á faglegum forsendum. Undirskriftasöfnuninni lýkur í dag og er stefnt að því að foreldrar fjölmenni við Ráðhúsið þar sem undirskriftirnar verða afhentar borgaryfirvöldum klukkan fimm í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×