Innlent

Þyrla sótti slasaðan vélsleðamann

Vélsleðamaður slasaðist þegar hann var á ferð í Vestdal á Fjarðarheiði, ofan við Seyðisfjörð í gærkvöldi. Björgunarsveitir voru kallaðar út og héldu ásamt lækni á vettvang og var kallað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Búið var um hinn slasaða á vettvangi og þyrlan flutti hann til Egilsstaða, þar sem hraðfleyg sjúkravél tók við honum og flutti til Reykjavíkur, þar sem hann var lagður inn á Slysadeild Landsspítalans.

Hann mun hafa verið töluvert meiddur, en ekki í lífshættu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×