Innlent

Ríkissaksóknari tjáir sig ekki um kröfu forsætisráðherra

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.
Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, ætlar ekki tjá sig um kröfu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra,  að hann þurfi að rökstyðja mál sitt vegna ummæla hans um forsætisráðherra eða draga ummælin til baka. Hann sagði við fréttastofu í morgun að hann ætlaði að kynna sér það sem forsætisráðherra hefði sagt og síðan meta hvort ástæða væri fyrir sig að tjá sig um kröfu forsætisráðherra.

Á málstofu á föstudag gaf Valtýr í skyn að forsætisráðherra hefði skipt sér með óeðlilegum hætti af störfum ákæruvaldsins með ýmsum ummælum sem Valtýr taldi óábyrg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×