Handbolti

Einar: Margt jákvætt í okkar leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það er alltaf hundfúlt að tapa svona leik,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir tapið gegn Val í kvöld.



„Ég sé samt margt jákvætt eftir þennan leik sem liðið á að geta byggt á. Við vorum að spila fínan varnarleik og börðumst allan tíman, en það sem verður okkur að falli hér í kvöld eru 18 tapaðir boltar eftir tæknifeila hjá mínum leikmönnum. Í raun og veru spilum við einnig ágætan sóknarleik og náum að skapa okkur fullt af færum sem við hefðum mátt nýta betur. Við þurfum bara að skoða alla þessa hluti og jafna síðan einvígið í næsta leik á okkar heimavelli,“ sagði Einar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×