Handbolti

Þjálfari Fram tók armbeygjur á blaðamannafundi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram í handknattleik, var tekinn á teppið á blaðamannafundi HSÍ í dag vegna úrslitarimmu Fram og Vals í N1-deild kvenna.

Einar mætti allt of seint á fundinn, reyndar ekki í fyrsta skipti sem það gerist, og nafni hans Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, krafðist þess að þjálfarinn tæki út sömu refsingu og hans leikmenn er þær mæta of seint á æfingu.

Þrátt fyrir smá mótbárur gaf Einar sig á endanum og tók tíu armbeygjur á N1-bensínstöðinni við Hringbraut.

Hægt er að horfa á myndbandið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×