Innlent

Eldvarnarbjalla reyndist skólabjalla

Lögreglan á Akureyri kalllaði slökkviliðið út rétt fyrir klukkan eitt í nótt vegna nokkurra tilkynninga bæjarbúa um að eldvarnarbjalla væri að hringja í Oddeyrarskóla.

Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang, kom í ljós að það var sjálf skólabjallan, sem hringdi á afláts inn í tíma. Skólastjórinn kom á vettvang og aftengdi hana en enginn reyndist eldurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×