Innlent

Viðbúnaðarstig á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi

Viðbúnaðarstig var sett á Reykjavíkurflugvöll á ellefta tímanum í gærkvöldi þegar flugmenn á lítilli tveggja hreyfla vél , sem voru í aðflugi að vellinum, tilkynntu að ljós gæfu til kynna að hjólin hefðu ekki farið tryggilega niður.

Kallað var á slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til aðstoðar slökkviliðinu og flaug vélin lágt yfir flugbrautina svo slökkvililðsmenn gætu séð hvort hjólin væru niðri eða ekki. Þau reyndust niðri og flugmennirnir lentu henni svo heilu og höldnu, en þrír menn voru í henni.

Bilun reyndist vera í viðvörunarljósunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×